27. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 10. desember 2019 kl. 09:04


Mættir:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:04
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:04
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:04
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:04
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:04
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:04
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:04
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:04
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 09:04

Hanna Katrín Friðriksson vék af fundi kl. 10:43 vegna annarra þingstarfa.

Vilhjálmur Árnason var fjarverandi.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:04
Frestað.

2) 315. mál - breyting á lögum vegna alþjóðasamþykktar um vinnu við fiskveiðar Kl. 09:04
Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var afgreidd af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Allir viðstaddir nefndarmenn standa að nefndaráliti. Einnig skrifar Vilhjálmur Árnason undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

3) 316. mál - áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa Kl. 09:15
Framsögumaður málsins, Jón Gunnarsson, lagði fram drög að nefndaráliti.

Nefndin ræddi málið.

4) 148. mál - stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019--2033 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2019--2023 Kl. 09:36
Nefndarmenn ræddu við Þröst Friðfinnsson frá Grýtubakkahreppi, Ólaf Rúnar Ólafsson, lögmann hreppsins og Hermann Sæmundsson frá samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu í síma. Gerðu þeir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi málið.

5) 391. mál - tekjustofnar sveitarfélaga Kl. 11:10
Nefndin samþykkti að Jón Gunnarsson yrði framsögumaður málsins.

6) Önnur mál Kl. 11:10
Nefndin ræddi störfin framundan.

Fundi slitið kl. 11:17