29. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 12. desember 2019 kl. 09:43


Mættir:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:43
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:43
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:43
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:43
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:43
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:43
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:43
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:43
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 09:43

Vilhjálmur Árnason boðaði forföll.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:43
Frestað.

2) 391. mál - tekjustofnar sveitarfélaga Kl. 09:43
Framsögumaður málsins, Jón Gunnarsson, kynnti drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Meiri hluti nefndar stendur að nefndaráliti og breytingartillögu. Bergþór Ólason og Karl Gauti Hjaltason skrifa undir með fyrirvara. Auk þess skrifar Vilhjálmur Árnason undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Hanna Katrín Friðriksson boðaði að hún hyggðist skila áliti minni hluta.

3) 316. mál - áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa Kl. 10:07
Framsögumaður málsins, Jón Gunnarsson, kynnti drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Meiri hluti nefndar stendur að nefndaráliti og breytingartillögu. Jón Gunnarsson og Hanna Katrín Friðriksson skrifa undir með fyrirvara. Auk þess skrifar Vilhjálmur Árnason undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

4) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15