30. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 16. desember 2019 kl. 10:00


Mættir:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 10:00
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 10:00
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 10:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:00
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 10:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 10:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:00

Jón Gunnarsson var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerðir 22. og 23. fundar samþykktar.

2) 32. mál - endurskoðun á ráðstöfun almannafjár við gæðastýringu í sauðfjárrækt Kl. 10:00
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Bergþór Ólason, Hanna Katrín Friðriksson, Ari Trausti Guðmundsson, Guðjón Brjánsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Auk þess skrifar Jón Gunnarsson undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

3) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15