73. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 19. júní 2020 kl. 13:04


Mætt:

Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 13:04
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 13:04
Bryndís Haraldsdóttir (BHar) fyrir Vilhjálm Bjarnason (VilB), kl. 13:04
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 13:04
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 13:07
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 13:04
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 13:04
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:05

Bergþór Ólason boðaði forföll.

Hanna Katrín Friðriksson var fjarverandi.

Nefndarritari: Pétur Hrafn Hafstein

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:04
Fundargerðir 70., 71. og 72. fundar nefndarinnar voru samþykktar.

2) 720. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 13:05
Ari Trausti Guðmundsson, framsögumaður málsins, kynnti þær breytingar sem gerðar voru á drögum að nefndaráliti eftir umræður um málið á síðasta fundi nefndarinnar.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti og breytingartillögu meiri hluta standa Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Guðjón S. Brjánsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Hanna Katrín Friðriksson skrifar undir álitið, með fyrirvara, skv. heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Björn Leví Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi, lýsti sig samþykkan álitinu.

Karl Gauti Hjaltason boðaði sérálit.

3) Önnur mál Kl. 13:13
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:14