5. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 5. nóvember 2020 kl. 09:02


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:02
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:02
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:02
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:02
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:03
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:03
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:02
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ) fyrir Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:02
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:02

Hanna Katrín Friðriksson boðaði forföll.

Líneik Anna Sævarsdóttir vék af fundi kl. 10:15.

Nefndarritari:
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:03
Fundargerð 4. fundar samþykkt.

2) Útboð á ríkisstyrktum flugleiðum Kl. 09:04
Á fund nefndarinnar mættu Hörður Guðmundsson og Kristján L. Möller frá Flugfélaginu Erni, reifuðu sjónarmið félagsins um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Þá mættu á fundinn Bergþóra Þorkelsdóttir, Bergþóra Kristinsdóttir og Ólafur Þór Leifsson frá Vegagerðinni ásamt Daniel Isebarn Ágústssyni lögmanni. Fóru þau yfir sjónarmið Vegagerðarinnar um málið og svörðuð spurningum nefndarmanna.

3) Orkuskipti í flugsamgöngum á Íslandi Kl. 10:27
Nefndin ákvað að fresta umfjöllun um málið.

4) 39. mál - þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar Kl. 10:28
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

5) Önnur mál Kl. 10:29
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:30