9. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 12. nóvember 2020 kl. 09:01


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:01
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:01
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:01
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:01
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:04
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:01
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:01
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 09:01
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:01

Hanna Katrín Friðriksson boðaði forföll.

Nefndarritari:

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:02
Dagskrárlið frestað.

2) Útboð á ríkisstyrktum flugleiðum Kl. 09:03
Á fund nefndarinnar mætti Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ásamt Ragnhildi Hjaltadóttur, Sigurbergi Björnssyni og Ólafi Kr. Hjörleifssyni frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Orkuskipti í flugsamgöngum á Íslandi Kl. 09:50
Nefndin ræddi málið.

4) Önnur mál Kl. 09:57
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:59