31. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 29. janúar 2021
kl. 13:03
Mætt:
Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 13:03Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 13:03
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 13:03
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:03
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 13:03
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 13:03
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 13:03
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:25
Ari Trausti Guðmundsson og Karl Gauti Hjaltason boðuðu forföll.
Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir
Fundurinn var sameiginlegur með utanríkismálanefnd.
Bókað:
1) Fjarskipti og netöryggi Kl. 13:03
Á fund nefndanna mættu Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkisráðuneytinu og Sigurður Emil Pálsson og Sigríður Rafnar Pétursdóttir frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
Gestirnir fjölluðu um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 14:09