35. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 12. febrúar 2021 kl. 13:03


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 13:03
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 13:03
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 13:11
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 13:03
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:03
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 13:03
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 13:03
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 13:03
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:35

Karl Gauti Hjaltason boðaði forföll.

Sara Elísa Þórðardóttir vék af fundi kl. 14:00.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:03
Fundargerð 34. fundar var samþykkt.

2) 209. mál - fjarskipti Kl. 13:05
Á fund nefndarinnar mættu Dóra Sif Tynes og Beatriz Garcia Martinez frá Huwawei. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá mætti Baldur Dýrfjörð frá Samorku. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Kl. 14:02
Þar á eftir mættu Hlynur Halldórsson, Jóhann Sveinn Sigurleifsson, Jón Ingi Ingimundarson og Kjartan Ari Jónsson frá Gagnaveitu Reykjavíkur. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Að lokum mættu Auður Inga Ingvarsdóttir og Jón Ríkarð Kristjánsson frá Mílu. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 13:35
Nefndin ræddi starfið framundan.

Hlé var gert á fundi frá kl. 13:47 til 14:02.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:58