41. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 4. mars 2021 kl. 09:05


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:05
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:28
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:05
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:05
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:07
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:05
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:05
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 09:05
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:05

Ari Trausti Guðmundsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:07
Fundargerðir 39. og 40 fundar voru samþykktar.

2) 369. mál - Hálendisþjóðgarður Kl. 09:07
Á fund nefndarinnar mættu Bergþóra Þorkelsdóttir, Guðmundur Valur Guðmundsson og Stefán Erlendsson frá Vegagerðinni. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningu nefndarmanna.

3) 562. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 09:55
Samþykkt var að senda málið til umsagna með 2 vikna fresti.

4) 340. mál - umferðarlög Kl. 09:55
Samþykkt var að senda málið til umsagna með 2 vikna fresti.

5) 319. mál - uppgræðsla lands og ræktun túna Kl. 09:55
Samþykkt var að senda málið til umsagna með 2 vikna fresti.

6) 353. mál - framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2. Kl. 09:55
Samþykkt var að senda málið til umsagna með 2 vikna fresti.

7) Önnur mál Kl. 09:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:57