41. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 3. júní 2022 kl. 09:04


Mætt:

Bjarni Jónsson (BjarnJ) 2. varaformaður, kl. 09:04
Björn Leví Gunnarsson (BLG) fyrir Lenya Rún Taha Karim (LenK), kl. 09:04
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:04
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:04
Ingibjörg Isaksen (IÓI), kl. 09:04
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:04
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:04
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 09:04

Vilhjálmur Árnason og Þorbjörg Sigríður Gunnnlaugsdóttir boðuðu forföll.
Helga Vala Helgadóttir vék af fundinum kl. 10:50. Þá vék Jakob Frímann Magnússon af fundinum kl. 10:10, Ingibjörg Isaksen kl. 11:35 og svo Orri Páll Jóhannsson kl. 10:59.

Halla Signý Kristjánsdóttir tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Nefndarritari: Marta Mirjam Kristinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:04
Dagskrárlið frestað.

2) 186. mál - loftferðir Kl. 09:04
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Valgerði B. Eggertsdóttur og Ólaf Kr. Hjörleifsson frá innviðaráðuneytinu.

3) 571. mál - sveitarstjórnarlög Kl. 10:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðjón Bragason og Valgerði Rún Benediktsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

4) 563. mál - stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022--2036 Kl. 10:34
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðjón Bragason og Valgerði Rún Benediktsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

5) 471. mál - loftslagsmál Kl. 11:22
Framsögumaður málsins, Orri Páll Jóhannsson, kynnti drög að nefndaráliti með breytingartillögu og ræddi nefndin málið.

Tillaga 2. varaformanns um að málið yrði afgreitt úr nefndinni til 2. umræðu var samþykkt af Bjarna Jónssyni, Orra Pál Jóhannssyni, Höllu Signý Kristjánsdóttur, Ingibjörg Isaksen, Njáli Trausta Friðbertssyni. Björn Leví Gunnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Að nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögu standa Bjarni Jónsson, Orri Páll Jóhannsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Isaksen og Njáll Trausti Friðbertsson. Vilhjálmur Árnason, Helga Vala Helgadóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

6) Drög að landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt Kl. 11:35
Björn Helgi Barkarson og Salóme Hallfreðsdóttir frá matvælaráðuneytinu mættu á fund nefndarinnar og kynntu drög að landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt.

7) Önnur mál Kl. 12:07
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:07