47. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 13. júní 2022 kl. 18:32


Mætt:

Vilhjálmur Árnason (VilÁ) formaður, kl. 18:32
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG) 1. varaformaður, kl. 18:32
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 18:32
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 18:32
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 18:32
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 18:32
Ingibjörg Isaksen (IÓI), kl. 18:32
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 18:32
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 18:32
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 18:32

Bjarni Jónsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Marta Mirjam Kristinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 18:32
Dagskrárlið frestað.

2) 186. mál - loftferðir Kl. 18:32
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ebbu Schram frá Reykjavíkurborg og Guðjón Bragason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem tóku þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Tillaga formanns um að málið yrði afgreitt úr nefndinni til 2. umræðu var samþykkt af Vilhjálmi Árnasyni, Njáli Trausta Friðbertssyni, Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Helgu Völu Helgadóttur, Ingibjörgu Isaksen, Orra Pál Jóhannssyni og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
Andrés Ingi Jónsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Að nefndaráliti meiri hluta með breytingatillögu standa Vilhjálmur Árnason, Njáll Trausti Friðbertsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Helga Vala Helgadóttir, Ingibjörg Isaksen, Orri Páll Jóhannsson og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir. Bjarni Jónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Jakob Frímann Magnússon og Bergþór Ólason, áheyrnafulltrúar í nefndinni, lýstu sig samþykka áliti þessu.

Andrés Ingi Jónsson boðaði sérálit.

3) 470. mál - leigubifreiðaakstur Kl. 18:45
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigurð Inga Jóhannsson, innviðaráðherra, og Ólaf Kr. Hjörleifsson og Jónas Birgi Jónasson frá innviðaráðuneytinu.

Framsögumaður málsins, Halla Signý Kristjánsdóttir, kynnti drög að nefndaráliti með breytingartillögu sem nefndin ræddi í framhaldinu.

4) Önnur mál Kl. 19:24
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 19:24