50. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 30. apríl 2012 kl. 09:06


Mættir:

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (GLG) formaður, kl. 09:00
Atli Gíslason (AtlG), kl. 09:00
Árni Johnsen (ÁJ), kl. 09:23
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:30
Mörður Árnason (MÁ), kl. 09:00
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:00
Róbert Marshall (RM), kl. 09:00
Vigdís Hauksdóttir (VigH) fyrir ÁsmD, kl. 09:00
Þuríður Backman (ÞBack), kl. 09:00

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:06
Farið var yfir fundargerð síðasta fundar og hún samþykkt til birtingar á vef nefndarinnar án athugasemda.

2) Flugráð. Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar komu Gunnlaugur Stefánsson, Lárus Atlason og Auður Alfífa Karlsdóttir frá flugráði. Fóru þau yfir stöðu flugmála á Íslandi og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 372. mál - umhverfisábyrgð Kl. 09:48
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

4) 348. mál - siglingalög Kl. 09:56
Nefndin afgreiddi álit sitt.
Að álitinu standa; GLG, ÓÞ, ÞBack, RM og MÁ.

5) 375. mál - varnir gegn mengun hafs og stranda Kl. 10:07
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

6) 751. mál - loftslagsmál Kl. 10:15
Borin var upp sú tillaga að ÞBack yrði framsögumaður frumvarpsins. Það var samþykkt. Umsagnarfrestur ákveðin til 11. maí nk.

7) Önnur mál. Kl. 10:32
Fleira var ekki rætt.

Fundi slitið kl. 10:32