26. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 7. desember 2012 kl. 09:11


Mættir:

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (GLG) formaður, kl. 09:11
Atli Gíslason (AtlG), kl. 09:11
Álfheiður Ingadóttir (ÁI), kl. 09:16
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD), kl. 09:19
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:33
Mörður Árnason (MÁ), kl. 09:11
Róbert Marshall (RM), kl. 09:11
Þór Saari (ÞSa), kl. 09:11

ÞSa vék af fundi kl. 10:11-11:15.
MÁ vék af fundi kl. 10:39.
ÁI vék af fundi kl. 11:18-11:30.

ÓÞ og ÁJ voru fjarverandi.

Nefndarritari: Þórunn Pálína Jónsdóttir

Bókað:

1) Fundargerðir. Kl. 09:13
Dagskrárlið frestað.

2) 415. mál - stjórnarskipunarlög Kl. 09:13
Nefndin fékk á sinn fund Ragnhildi Helgadóttur sem ræddi afstöðu sína til málsins og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Ábendingar Ríkisendurskoðunar um Umhverfisstofnun. Kl. 10:41
Nefndin fékk á sinn fund Þóri Óskarsson og Kristínu Kalmansdóttur frá Ríkisendurskoun, Kristínu Lindu Árnadóttur og Sigrúnu Ágústsdóttur frá Umhverfisstofnun, og Sigurbjörgu Sæmundsdóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Gestirnir ræddu ábendingar Ríkisendurskoðunar og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 131. mál - rannsókn samgönguslysa Kl. 11:31
Drögum að nefndaráliti var dreift.

5) Önnur mál. Kl. 11:34
Fleira var ekki rætt.

Fundi slitið kl. 11:35