56. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 15. maí 2014
kl. 08:20
Mættir:
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 08:20Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 08:20
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 08:28
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 08:32
Brynhildur S. Björnsdóttir (BSB) fyrir RM, kl. 08:20
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) fyrir BN, kl. 08:53
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 08:47
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 08:20
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:20
Haraldur Einarsson vék af fundi kl. 9:17 og Páll Jóhann Pálsson kom í hans stað.
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) 600. mál - frestun verkfallsaðgerða Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair ehf. Kl. 08:20
Nefndin fjallaði um 600. mál og fékk á sinn fund Björn Frey Björnsson og Sigurberg Björnsson frá innanríkisráðuneytinu sem kynntu efni frumvarpsins og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Þegar þeir höfðu yfirgefið fundinn komu á fundinn Hafsteinn Pálsson, Jón Þór Þorvaldsson, Örnólfur Jónsson og Sindri Sveinsson frá FÍA.
Þegar framangreindir gestir höfðu yfirgefið fundinn komu á fundinn Svali Björgvinsson, Guðmundur Pálsson, Björgólfur Jóhannsson og Guðni Arngrímsson frá Icelandair.
Þegar þeir höfðu yfirgefið fundinn kom á fundinn Magnús Pétursson ríkissáttasemjari.
Á eftir ríkissáttasemjara komu á fundinn Ástráður Haraldsson og Hrafnhildur Stefánsdóttir og á eftir þeim komu Þorsteinn Víglundsson frá Samtökum atvinnulífsins og Magnús Norðdahl frá Alþýðusambandi Íslands.
Að gestakomum loknum lagði formaður til að málið yrði afgreitt sem enginn viðstaddra andmætli, en fulltrúar stjórnarandstöðu sátu hjá.
Að áliti meiri hlutans standa: HöskÞ, PJP, BirgÁ, GÞÞ og VilÁ.
Að áliti minni hlutans standa: Kajúl, KJak, JÞÓ og BSB.
2) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:00