59. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 22. maí 2015 kl. 08:40


Mættir:

Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 08:40
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 08:40
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:27
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 08:40

Róbert Marshall var fjarverandi vegna annarra þingstarfa. Vilhjálmur Árnason var fjarverandi vegna veikinda barna.
Haraldur Einarsson, Elín Hirst og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 08:40
Samþykktum fundargerða var frestað.

2) 560. mál - landmælingar og grunnkortagerð Kl. 08:45
Á fund nefndarinnar kom Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

3) 361. mál - skipulags- og mannvirkjamál á Reykjavíkurflugvelli Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar komu Ásdís Hlökk Theódórsdóttir og Ottó Björgvin Óskarsson frá Skipulagsstofnun og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í gegnum síma.

4) 674. mál - Samgöngustofa og loftferðir Kl. 10:00
Umfjöllun um málið var frestað.

5) Önnur mál Kl. 10:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00