27. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 14. desember 2015 kl. 09:50


Mættir:

Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 09:50
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 09:50
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 09:50
Elín Hirst (ElH), kl. 09:50
Róbert Marshall (RM), kl. 09:50
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:50
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:50

Birgir Ármannsson hafði boðuð forföll.
Ásta Guðrún Helgadóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:50
Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.

2) 225. mál - skipulagslög Kl. 09:50
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt sem var samþykkt.

Að nefndaráliti standa allir viðstaddir nefndarmenn: HöskÞ, KaJúl, HE, ElH, SSv, RM og VilÁ.

3) 265. mál - þriðja kynslóð farsíma Kl. 09:52
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt sem var samþykkt.

Að nefndaráliti standa allir viðstaddir nefndarmenn: HöskÞ, KaJúl, HE, ElH, SSv, RM og VilÁ.

4) 263. mál - tekjustofnar sveitarfélaga Kl. 09:55
Nefndin fjallaði um málið.

5) Önnur mál Kl. 10:00
Formaður fjallaði um loftslagsráðstefnuna í París og möguleika á fundi með þeim íslensku aðilum sem sendu fulltrúa á ráðstefnuna.

Fundi slitið kl. 10:10