43. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 13. apríl 2016 kl. 10:05


Mættir:

Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 10:05
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 10:05
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 10:05
Elín Hirst (ElH), kl. 10:05
Róbert Marshall (RM), kl. 10:05
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:05
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:42

Róbert Marshall vék af fundi kl. 10:25.
Ásta Guðrún Helgadóttir og Birgir Ármannsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:05
Samþykkt fundargerða var frestað.

2) Drög að breytingum á byggingarreglugerð Kl. 10:05
Á fund nefndarinnar komu Ellen Calmon og Daníel Isebarn frá Öryrkjabandalagi Íslands og gerðu þau grein fyrir minnisblaði samtakanna um málið og á fundinn kom einni Hafsteinn Pálsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti sem kynnti drög að lokaniðurstöðu ráðuneytisins um breytingar á byggingarreglugerð.

3) Önnur mál Kl. 11:25
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:25