44. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, miðvikudaginn 20. apríl 2016 kl. 12:36


Mættir:

Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 12:36
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 12:36
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 12:36
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) fyrir Elínu Hirst (ElH), kl. 12:36
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 12:36

Höskuldur Þórhallsson var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
Katrín Júlíusdóttir, Ásta Guðrún Helgadóttir og Róbert Marshall voru fjarverandi.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:20
Fundargerðir 37. - 43. fundar voru samþykktar.

2) 638. mál - fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018 Kl. 12:36
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með einnar viku fresti.

3) Önnur mál Kl. 12:37
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:37