63. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 7. júní 2016 kl. 13:30


Mættir:

Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 13:30
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 13:30
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 13:30
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 13:30
Róbert Marshall (RM), kl. 13:30
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 13:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:30

Elín Hirst boðaði forföll.
Ásta Guðrún Helgadóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:30
Fundargerðir 51. - 62. fundar voru samþykktar.

2) 673. mál - Vatnajökulsþjóðgarður Kl. 13:30
Á fund nefndarinnar komu fyrst fulltrúar úr stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs: Guðrún Áslaug Jónsdóttir, Jóhann Þórhallsson, Björn Ingi Jónsson og Heiða Guðný Ásgeirsdóttir.

Síðan komu á fundinn þjóðgarðsverðir Vatnajökulsþjóðgarðs: Agnes Brá Birgisdóttir, Guðmundur Ögmundsson, Orri Páll Jóhannsson og Helga Árnadóttir.

Í lok fundarins kom Jón Geir Pétursson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti á fundinn.

3) Önnur mál Kl. 15:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:30