19. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 7. apríl 2017 kl. 08:33


Mættir:

Valgerður Gunnarsdóttir (ValG) formaður, kl. 08:30
Pawel Bartoszek (PawB) 1. varaformaður, kl. 08:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 08:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 08:30
Einar Brynjólfsson (EB), kl. 08:30
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 08:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 08:43
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 08:36

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:33
Fundargerðir 11., 12., 15. og 16. fundar voru samþykktar.

2) Umfjöllun um lagfæringu á lögum nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa o.fl. Kl. 08:35
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Sigurberg Björnsson og Björn Frey Björnsson frá innanríkisráðuneyti.

3) 146. mál - orkuskipti Kl. 09:20
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Erlu Sigríði Gestsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

4) 128. mál - farþegaflutningar og farmflutningar Kl. 10:30
Nefndin hélt áfram umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Gunnar Val Sigurðsson og Harald Teitsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar.

5) 204. mál - Umhverfisstofnun Kl. 11:00
Nefndin hóf umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Sigurbjörgu Sæmundsdóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

6) 376. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 11:45
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Einar Brynjólfsson yrði framsögumaður málsins.

7) 356. mál - loftslagsmál Kl. 11:47
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Gunnar Bragi Sveinsson yrði framsögumaður málsins.

8) 355. mál - varnir gegn mengun hafs og stranda og hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 11:50
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Valgerður Gunnarsdóttir yrði framsögumaður málsins.

9) 333. mál - meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur Kl. 11:53
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Pawel Bartoszek yrði framsögumaður málsins.

10) Önnur mál Kl. 11:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:55