5. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 9. október 2018 kl. 09:01


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:01
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:01
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:01
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:01
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:01
Jón Þór Þorvaldsson (JÞÞ) fyrir Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 09:01
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:37
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:01
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:17

Rósa Björk Brynjólfsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) 81. mál - vaktstöð siglinga Kl. 09:01
Á fund nefndarinnar mætti Björn Freyr Björnsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og kynnti málið fyrir nefndinni auk þess að svara spurningum nefndarmanna.

2) 77. mál - breyting á ýmsum lögum vegna laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga Kl. 09:15
Á fund nefndarinnar mætti Skúli Þór Gunnsteinsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og kynnti málið fyrir nefndinni auk þess að svara spurningum nefndarmanna.

3) Fundargerð Kl. 09:36
Fundargerð 4. fundar samþykkt.

4) Önnur mál Kl. 09:37
Nefndin ræddi starfið framundan. Helga Vala Helgadóttir ítrekaði að nauðsynlegt væri að nefndin héldi fund um loftslagsmál sem allra fyrst.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:50