29. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 13. desember 2018 kl. 09:33


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:33
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:33
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:33
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:40
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:33
Jón Þór Þorvaldsson (JÞÞ), kl. 09:33
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:33
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:33
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:33

Rósa Björk Brynjólfsdóttir boðaði forföll vegna þingstarfa erlendis.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:33
Fundargerðir 24. - 28. fundar samþykktar.

2) 77. mál - breyting á ýmsum lögum vegna laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga Kl. 09:35
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.
Jón Gunnarsson, Ari Trausti Guðmundsson, Jón Þór Þorvaldsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis, skrifuðu undir nefndarálit meiri hluta með breytingartillögu.
Helga Vala Helgadóttir boðaði minnihluta álit.

3) 172. mál - fimm ára samgönguáætlun 2019--2023 Kl. 09:44
Nefndin ræddi málið.

4) 173. mál - samgönguáætlun 2019--2033 Kl. 09:44
Nefndin ræddi málið.

5) 416. mál - öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða Kl. 10:01
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með fresti til 14. janúar.

6) Önnur mál Kl. 10:02
Nefndin ræddi starfið framundan.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:04