21. fundur
utanríkismálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 15. mars 2021 kl. 09:00


Mætt:

Sigríður Á. Andersen (SÁA) formaður, kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:00
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 09:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:00
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 09:00
Olga Margrét Cilia (OC) fyrir Kötlu Hólm Þórhildardóttur (KÞ), kl. 09:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:00

Bryndís Haraldsdóttir vék af fundi kl. 10:15.

Nefndarritarar:
Bylgja Árnadóttir
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

1927. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 20. fundar var samþykkt.

2) Skýrsla starfshóps um ljósleiðaramál og útboð ljósleiðaraþráða Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar komu Haraldur Benediktsson formaður starfshópsins og Jóna Sólveig Elínardóttir frá utanríkisráðuneyti.

Gestirnir kynntu skýrsluna og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Árlegt samráð við Bandaríkin um öryggis- og varnarmál Kl. 09:45
Á fund nefndarinnar kom Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkisráðuneyti sem kynnti málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 186. mál - undirritun og fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum Kl. 10:15
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar.

Ari Trausti Guðmundsson var valinn framsögumaður málsins.

5) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1054 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 561/2006 að því er varðar lágmarkskröfur um daglegan og vikulegan hámarksaksturstíma, lágmarkvinnuhlé og daglegan og vikulegan hvíldartíma og reglugerð Kl. 10:18
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið.

6) Önnur mál Kl. 10:20
Rætt var um störfin framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:32