8. fundur
utanríkismálanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 2. febrúar 2022 kl. 09:02


Mætt:

Bjarni Jónsson (BjarnJ) formaður, kl. 09:02
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:02
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:02
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:02
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:02
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 09:02
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:17
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:02
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:02

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Stígur Stefánsson

1949. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:02
Fundargerð 7. fundar var samþykkt.

2) 248. mál - ákvörðun um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:05
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Bjarni Jónsson formaður og framsögumaður, Birgir Þórarinsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi, lýsti sig samþykkan álitinu.

3) 198. mál - ákvörðun nr. 50/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:06
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Bjarni Jónsson formaður, Diljá Mist Einarsdóttir framsögumaður, Birgir Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi, lýsti sig samþykkan álitinu.

4) 249. mál - ákvörðun nr. 214/2020 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:07
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Bjarni Jónsson formaður, Diljá Mist Einarsdóttir framsögumaður, Birgir Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi, lýsti sig samþykkan álitinu.

5) Alþjóðastarf utanríkismálanefndar Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um alþjóðastarfið framundan og tilnefndi Bjarna Jónsson, Njál Trausta Friðbertsson, Loga Einarsson og Jakob Frímann Magnússon sem fulltrúa utanríkismálanefndar í sameiginlega þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins.

6) Önnur mál Kl. 09:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:45