12. fundur
utanríkismálanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 2. mars 2022 kl. 09:05


Mætt:

Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:05
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:05
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:10
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 09:05
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:05
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:05
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir Bjarna Jónsson (BjarnJ), kl. 09:05
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:05

Diljá Mist Einarsdóttir tilkynnti forföll og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Hildur Edwald

1953. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:05
Fundargerð 11. fundar var samþykkt

2) Ástandið í Úkraínu Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Önnu Jóhannsdóttur, Bryndísi Kjartansdóttur, Ragnar Kristjánsson og Maríu Mjöll Jónsdóttur frá utanríkisráðuneyti.

3) 354. mál - staðfesting samninga Íslands um afmörkun landgrunnsins handan 200 sjómílna Kl. 10:40
Gestir fundarins voru Anna Jóhannsdóttir og Birgir Hrafn Búason frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarinnar.

Njáll Trausti Friðbertsson var valinn framsögumaður málsins.

4) 206. mál - fullgilding fríverslunarsamnings Íslands, Noregs og Liechtenstein og Stóra-Bretlands og Norður-Írlands Kl. 09:05
Nefndin afgreiddi málið. Að nefndaráliti stóðu allir viðstaddir nefndarmenn. Diljá Mist Einarsdóttir skrifar undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr þingskapa.

5) Önnur mál Kl. 10:55
Nefndin fjallaði um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00