34. fundur
utanríkismálanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 22. apríl 2015 kl. 19:50


Mættir:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 19:48
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD) 1. varaformaður, kl. 19:48
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 19:50
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 19:48
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 19:48
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 19:48

Elín Hirst, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Össur Skarphéðinsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Sesselja Sigurðardóttir

1658. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 30. apríl 2015 Kl. 19:50
Á fund nefndarinnar komu Anna Katrín Vilhjálmsdóttir frá utanríkisráðuneyti, Rúnar Guðjónsson frá innanríkisráðuneyti, Steinunn Fjóla Sigurðardóttir frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Erla Sigríður Gestsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 479. mál - samstarf við Færeyjar og Grænland um leiðir til að draga úr útblæstri brennisteins frá skipum Kl. 20:49
Málið var tekið fyrir aftur vegna villu í upphaflegri tillögugrein. Endurbætt drög að nefndaráliti voru lögð fram og samþykkt. Að áliti nefndarinnar stóðu Birgir Ármannsson, Ásmundur Einar Daðason, Vilhjálmur Bjarnason, Frosti Sigurjónsson, Katrín Jakobsdóttir og Óttarr Proppé.

Í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda óskuðu Elín Hirst og Össur Skarphéðinsson eftir því að standa að álitinu þrátt fyrir fjarveru við afgreiðslu málsins, sá síðarnefndi með fyrirvara.

3) 608. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 269/2014 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn Kl. 20:52
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Formaður lagði fram drög að nefndaráliti sem voru samþykkt. Að áliti nefndarinnar stóðu Birgir Ármannsson, Ásmundur Einar Daðason, Vilhjálmur Bjarnason, Frosti Sigurjónsson, Katrín Jakobsdóttir og Óttarr Proppé.

Eín Hirst óskaði eftir því að standa að álitinu með fyrirvara þrátt fyrir fjarveru við afgreiðslu málsins, sbr. 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda.

4) 632. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 29/2015 um breytingu á XVII. viðauka við EES-samninginn Kl. 20:52
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Formaður lagði fram drög að nefndaráliti sem voru samþykkt. Að áliti nefndarinnar stóðu Birgir Ármannsson, Ásmundur Einar Daðason, Vilhjálmur Bjarnason, Frosti Sigurjónsson, Katrín Jakobsdóttir og Óttarr Proppé.

Eín Hirst óskaði eftir því að standa að álitinu með fyrirvara þrátt fyrir fjarveru við afgreiðslu málsins, sbr. 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda.

5) 695. mál - þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland Kl. 20:53
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið og skipaði Birgi Ármannsson framsögumann. Ákveðið var að senda málið til umsagnar.

6) Fundargerð Kl. 19:50
Fundargerðir 32. og 33. fundar voru samþykktar.

7) Önnur mál Kl. 20:53
Rætt var um 579. mál (frumvarp um alþjóðlega þróunarsamvinnu).

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 20:55