5. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 8. október 2015
kl. 09:00
Mættir:
Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) formaður, kl. 09:09Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG) 1. varaformaður, kl. 09:09
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 09:09
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 09:13
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG) fyrir Birgittu Jónsdóttur (BirgJ), kl. 09:09
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:09
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 09:13
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:09
Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 09:09
Elín Hirst var fjarverandi.
Nefndarritarar:
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Stígur Stefánsson
1687. fundur utanríkismálanefndar
Bókað:
1) Schengen og flóttamannastraumurinn Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar komu Hermann Sæmundsson, Þórunn Hafstein, Margrét Kristín Pálsdóttir og Íris Björg Kristjánsdóttir frá innanríkisráðuneyti og Axel Nikulásson frá utanríkisráðuneyti.
Lögð voru fram eftirtalin gögn:
a. Flóttamannavandinn í Evrópu - Utanríkismálanefnd október 2015
b. Tölfræðigögn frá Eurostat
Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
2) Fundargerð Kl. 10:17
Fundargerð 4. fundar var samþykkt.
3) Önnur mál Kl. 10:22
Rætt var um starf nefndarinnar framundan.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:25