47. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 26. maí 2016 kl. 09:00


Mættir:

Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) formaður, kl. 09:07
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG) 1. varaformaður, kl. 09:07
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 09:07
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 09:07
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:07

Elín Hirst og Frosti Sigurjónsson voru fjarverandi. Össur Skarphéðinsson og Karl Garðarsson voru fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.

Nefndarritarar:
Hildur Eva Sigurðardóttir
Stígur Stefánsson

1729. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:11
Fundargerð 46. fundar var samþykkt.

2) 681. mál - ákvarðanir EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar komu Kristján Andri Stefánsson og Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir frá utanríkisráðuneyti, Guðrún Þorleifsdóttir, Eva H. Baldursdóttir, Kjartan Gunnarsson og Erna Hjaltested frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Rúnar Örn Olsen og Páll Friðriksson frá fjármálaeftirlitinu.

Lagt var fram minnisblaðið „Valdheimildir ESB ESAs / EFTA SA og sviðsmyndir“ frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Fjármálaeftirliti, dags. 25. maí 2016.

Gestirnir fóru yfir minnisblaðið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 68. mál - alþjóðlegt bann við framleiðslu og beitingu sjálfvirkra og sjálfstýrðra vígvéla Kl. 10:15
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

4) 688. mál - Evrópska efnahagssvæðið Kl. 10:17
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu Vilhjálmur Bjarnason framsögumaður, Hanna Birna Kristjánsdóttir formaður, Óttarr Proppé, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir. Elín Hirst var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritaði undir álitið samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

5) 23. mál - samstarf Íslands og Grænlands Kl. 10:19
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

6) Önnur mál Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:30