55. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 12. ágúst 2016 kl. 13:10


Mættir:

Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) formaður, kl. 13:10
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 13:10
Árni Páll Árnason (ÁPÁ) fyrir Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 13:10
Elín Hirst (ElH), kl. 13:10
Karl Garðarsson (KG), kl. 13:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 13:10

Silja Dögg Gunnarsdóttir boðaði forföll, Frosti Sigurjónsson og Óttarr Proppé voru fjarverandi.

Nefndarritari: Hildur Eva Sigurðardóttir

1737. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:10
Fundargerðir 52. , 53. og 54. fundar voru samþykktar.

2) 783. mál - samningur Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur Kl. 13:10
Á fund nefndarinnar kom Ágúst Andrésson frá Landssamtökum sláturleyfishafa. Þá kom Gunnlaugur Eiðsson frá Kjarnafæði hf. Einnig kom Þórólfurn Guðnason Sóttvarnarlæknir og að síðustu komu Hannes G. Sigurðsson frá Samtökum atvinnulífsins, Almar Guðmundsson og Björg Ásta Þórðardóttir frá Samtökum iðnaðarins, Andrés Magnússon frá Samtökum verslunar og þjónustu og Ólafur Stephensen og Páll Rúnar M. Kristjánsson frá Félagi atvinnurekenda. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum sínum og umsögnum um málið auk þess að svara spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 15:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:20