41. fundur
utanríkismálanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 16. ágúst 2019 kl. 09:45


Mættir:

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (ÁslS) formaður, kl. 09:45
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) 1. varaformaður, kl. 10:53
Birgir Ármannsson (BÁ) fyrir Bryndísi Haraldsdóttur (BHar), kl. 09:45
Helga Vala Helgadóttir (HVH) fyrir Loga Einarsson (LE), kl. 09:45
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ) fyrir Gunnar Braga Sveinsson (GBS), kl. 09:45
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:45
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:45

Ari Trausti Guðmundsson og Smári McCarthy voru fjarverandi.

Helga Vala Helgadóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir véku af fundi kl. 12:25.

Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

1859. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:45
Fundargerð 40. fundar var samþykkt.

2) 777. mál - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn Kl. 09:45
Á fund nefndarinnar komu:
Kl. 09:45 Anna Jóhannsdóttir, Bergþór Magnússon og Borgar Þór Einarsson frá utanríkisráðuneyti og Ingvi Már Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
Kl. 10:40 Hilmar Gunnlaugsson
Kl. 11:00 Margrét Einarsdóttir
Kl. 11:30 Arnar Þór Jónsson
Kl. 12:00 Davíð Þór Björgvinsson
Kl. 12:30 Skúli Magnússon

Gestirnir gerðu grein fyrir sjónarmiðum sínum og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 13:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:30