31. fundur
utanríkismálanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, mánudaginn 11. maí 2020 kl. 09:30


Mætt:

Sigríður Á. Andersen (SÁA) formaður, kl. 09:30
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 09:30
Álfheiður Eymarsdóttir (ÁlfE), kl. 09:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:40
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 09:30
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 10:25
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:30

Logi Einarsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Stígur Stefánsson

1893. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 30. fundar var samþykkt.

2) 716. mál - utanríkisþjónusta Íslands Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar kom Anna Jóhannsdóttir frá utanríkisráðuneyti. Gesturinn kynnti málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 706. mál - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn Kl. 10:10
Fjallað var sameiginlega um dagskrárliði 3-4.

Á fund nefndarinnar komu Gautur Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Erna Hjaltested frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Gestirnir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 704. mál - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn Kl. 10:10
Sjá athugasemd við 3. dagskrárlið.

5) 705. mál - ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 302/2019 um breytingu á V. viðauka og bókun 31 við EES-samninginn Kl. 10:55
Dagskrárliðnum var frestað.

6) Önnur mál Kl. 10:55
Rætt var um störfin framundan. Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00