19. fundur
utanríkismálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 15. febrúar 2021 kl. 10:00


Mætt:

Sigríður Á. Andersen (SÁA) formaður, kl. 10:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 10:00
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 10:00
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 10:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:00
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 10:00
Olga Margrét Cilia (OC) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 10:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 10:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 10:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 10:20

Sigríður Á. Andersen vék af fundi kl. 10:40. Logi Einarsson og Olga Margrét Cilia véku af fundi kl. 11:10.

Nefndarritarar:
Bylgja Árnadóttir
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

1925. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerð 18. fundar var samþykkt.

2) Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar komu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, Össur Skarphéðinsson formaður Grænlandsnefndar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Geir Oddsson frá utanríkisráðuneyti.

Gestirnir kynntu skýrsluna „Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum“ og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 11:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:20