15. fundur
utanríkismálanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 14. mars 2022 kl. 09:30


Mætt:

Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:30
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ágústa Ágústsdóttir (ÁgÁ) fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:30
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:30
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 09:30
Ingibjörg Isaksen (IÓI) fyrir Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:30
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:30
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir Bjarna Jónsson (BjarnJ), kl. 09:30
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:30

Birgir Þórarinsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Hildur Edwald

1956. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 14. fundar var samþykkt.

2) Skipulag sendiskrifstofa Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Martein Eyjólfsson frá utanríkisráðuneyti.

3) Ástandið í Úkraínu Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Martin Eyjólfsson frá utanríkisráðuneyti.

Umfjöllunin var bundin trúnaði skv. 24. gr. þingskapa.

4) Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 18. mars 2022 Kl. 10:35
Gestir fundarins voru Ingólfur Friðriksson, Erna S. Hallgrímsdóttir og Daníel Freyr Birkisson frá utanríkisráðuneyti, Gunnlaugur Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Jónas Birgir Jónasson frá innviðaráðuneyti. Getsirnir tengdust fundinum í gegnum fjarfundarbúnað og kynntu þær gerðir sem taka á upp í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar sem haldinn veðrur 18. mars.

5) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00