41. fundur
utanríkismálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 28. mars 2014 kl. 09:04


Mættir:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 09:04
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 09:04
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ), kl. 09:04
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 09:04
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 09:04
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:04
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) fyrir ÁÞS, kl. 09:04
Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 09:04

Ásmundur Einar Daðason og Guðlaugur Þór Þórðarson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Þröstur Freyr Gylfason

1602. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerðir síðustu funda Kl. 09:04
Umfjöllun nefndarinnar um dagskrármálið var frestað.

2) Fundur sameiginlegur EES-nefndarinnar 4. apríl 2014 Kl. 09:04
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Kjartansdóttir og Anna Katrín Vilhjálmsdóttir frá utanríkisráðuneyti, Glóey Finnsdóttir og Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Erla Sigríður Gestsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, og Hrafnhildur Arnkelsdóttir og Rósmundur Guðnason frá Hagstofu Íslands.

Gerðu gestirnir grein fyrir fyrirhuguðum málum á dagskrá fundar sameiginlegur EES-nefndarinnar 4. apríl 2014 og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 320. mál - aðildarviðræður við Evrópusambandið Kl. 09:50
Á fund nefndarinnar komu Gunnar Haraldsson, Jónas Hlynur Hallgrímsson og Sigurður Jóhannesson frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Gerðu gestirnir grein fyrir málinu og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 10:53
a) Málsmeðferð þriggja þingsályktunartillagna er varða ESB-aðildarumsóknarferlið.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:18