50. fundur
utanríkismálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 7. maí 2014 kl. 15:00


Mættir:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 15:02
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD) 1. varaformaður, kl. 15:20
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 15:03
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 15:07
Guðmundur Steingrímsson (GStein) fyrir ÓP, kl. 15:03
Helgi Hjörvar (HHj) fyrir ÖS, kl. 15:04
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 15:03

Árni Þór Sigurðsson og Guðlaugur Þór Þórðarson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Stígur Stefánsson

1611. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) 348. mál - mótmæli gegn ofsóknum gegn samkynhneigðum í Úganda Kl. 15:04
Á fund nefndarinnar komu María Erla Marelsdóttir frá utanríkisráðuneyti og Engilbert Guðmundsson og Þórdís Sigurðardóttir frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Þau fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 340. mál - umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka Kl. 15:46
Nefndin hélt áfram samhliða umfjöllun um þrjú þingmál:
- mál 340: tillögu til þingsályktunar um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og um eflingu samstarfs við Evrópusambandið og Evrópuríki,
- mál 344: tillögu til þingsályktunar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið,
- mál 352: tillögu til þingsályktunar um formlegt hlé á aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins og þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræðurnar.

Á fund nefndarinnar komu Erna Bjarnadóttir og Elías Blöndal frá Bændasamtökum Íslands. Þau fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 344. mál - ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið Kl. 15:46
Sjá dagskrárlið 2.

4) 352. mál - formlegt hlé á aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins og þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræðurnar Kl. 15:46
Sjá dagskrárlið 2.

5) Önnur mál Kl. 16:40
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:45