18. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 3. desember 2015 kl. 09:00


Mættir:

Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) formaður, kl. 09:08
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 09:09
Elín Hirst (ElH), kl. 09:08
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 09:09
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:08
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS) fyrir Karl Garðarsson (KG), kl. 09:09
Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 09:08

Frosti Sigurjónsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Stígur Stefánsson

1700. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:08
Fundargerð 17. fundar var samþykkt.

2) 91. mál - alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl. Kl. 09:09
Fyrst kom á fund nefndarinnar Maríanna Traustadóttir frá ASÍ. Hún fjallaði um umsögn ASÍ og svaraði spurningum nefndarmanna.

Þá komu á fund nefndarinnar Ágústa Gísladóttir og Hannes Hauksson frá ÞSSÍ. Þau svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 10:17
Rætt var um alþjóðastarf utanríkismálanefndar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20