2. fundur
utanríkismálanefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 31. janúar 2017 kl. 09:00


Mættir:

Jóna Sólveig Elínardóttir (JSE) formaður, kl. 09:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar) 2. varaformaður, kl. 09:18
Ásta Guðrún Helgadóttir (ÁstaH), kl. 09:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:08
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 09:00

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Birgir Ármannsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Stígur Stefánsson

1751. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 1. fundar var samþykkt.

2) Kynning á starfi utanríkismálanefndar Kl. 09:04
Nefndarritari utanríkismálanefndar gerði grein fyrir starfi nefndarinnar og svaraði spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar kom Hildur Eva Sigurðardóttir forstöðumaður nefndasviðs Alþingis, gerði grein fyrir starfsreglum fastanefnda og svaraði spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar komu Finnur Þór Birgisson, Unnur Orradóttir Ramette og Helga Hauksdóttir frá utanríkisráðuneyti.

Gestirnir gerðu grein fyrir EFTA- og EES-samstarfinu og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Ritari EES-mála gerði grein fyrir þinglegri meðferð EES-mála og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 11:24
Rætt var um starfið framundan.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir lýsti vonbrigðum með viðbrögð formanns nefndarinnar við beiðni minnihluta nefndarinnar um að nefndin myndi funda hið fyrsta með utanríkisráðherra til þess að ræða aðgerðir Bandaríkjaforseta.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:30