11. fundur
utanríkismálanefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 30. mars 2017 kl. 09:00


Mættir:

Jóna Sólveig Elínardóttir (JSE) formaður, kl. 09:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 1. varaformaður, kl. 09:53
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:11
Katla Hólm Þórhildardóttir (KÞ) fyrir Ástu Guðrúnu Helgadóttur (ÁstaH), kl. 09:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:20
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 09:00

Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Stígur Stefánsson

1760. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar kom Gunnar Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti sem kynnti vinnu starfshóps um þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi.

2) 130. mál - ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 39/2016 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn Kl. 09:40
Á fund nefndarinnar kom Finnur Þór Birgisson frá utanríkisráðuneyti og Harpa Theodórsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

3) Önnur mál Kl. 10:20
Fjallað var um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:27