1. fundur
utanríkismálanefndar á 147. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 14. september 2017 kl. 09:00


Mættir:

Jóna Sólveig Elínardóttir (JSE) formaður, kl. 09:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásta Guðrún Helgadóttir (ÁstaH), kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 09:00

Bryndís Haraldsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

1779. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 29. fundar var samþykkt.

2) Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 22. september 2017 Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar komu Anna Katrín Vilhjálmsdóttir frá utanríkisráðuneyti, Steinunn Valdís Óskarsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Jón Vilberg Guðjónsson frá mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Gestirnir kynntu þær gerðir sem stefnt er á að taka upp í EES-samninginn á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 22. september nk.

3) Tilskipun nr. 2014/67/ESB um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1024/2012 um samvinnu á sviði stjórnsýslu fyrir tilstilli upplýsingakerfisins fyrir innri markaðinn (reglugerðin um IM-upplýsing Kl. 09:35
Formaður kynnti álit velferðarnefndar eftir efnislega umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.

4) Önnur mál Kl. 09:40
Rætt var um störfin framundan.

Eftirfarandi bókun var lögð fram af Rósu Björk Brynjólfsdóttur:

„Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, vill bóka athugasemdir við það annars vegar að þegar beðið er um minnisblað frá utanríkisráðuneytinu, sbr. upphaflega ósk um minnisblað um hvenær, hvar og hvernig íslensk stjórnvöld hefðu komið á framfæri andmælum við kjarnorkuvopnatilraunir Norður-Kóreu, þá sé reynt til hins ítrasta að hafa sem nákvæmastar upplýsingar. Hins vegar gerir Rósa Björk athugasemdir við að beðið hafi verið með sendingu minnisblaðs sem óskað var eftir til að fá viðbótarupplýsingar í tæpar 2 vikur, þar til eftir fund utanríkisráðherra með fulltrúa kínverskra stjórnvalda sem haldinn var þann 31. ágúst, til að koma því að í viðbótar-minnisblaðinu. Þessu vill þingmaðurinn mótmæla enda telur hún að þegar óskað er eftir minnisblaði frá utanríkisráðuneyti, eigi ekki að bíða eftir viðburðum eða fundum til að bæta í minnisblöð í þeim tilgangi að þau líti betur út fyrir ráðherra.“

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:46