26. fundur
utanríkismálanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 1. apríl 2019 kl. 10:00


Mættir:

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (ÁslS) formaður, kl. 10:12
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) 1. varaformaður, kl. 10:12
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 10:12
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 10:12
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:12
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS), kl. 10:12
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 10:12
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 10:12

Smári McCarthy var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Stígur Stefánsson

1844. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:12
Fundargerð 25. fundar var samþykkt.

2) Stefna Íslands í málefnum norðurslóða Kl. 10:13
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Kjartansdóttir og Jóna Sólveig Elínardóttir frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum þingmanna.

3) 750. mál - fjármálaáætlun 2020--2024 Kl. 10:22
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið og fjallaði um erindi frá formanni fjárlaganefndar.

4) 539. mál - fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja Kl. 10:33
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

5) Önnur mál Kl. 10:40
Rætt var um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:45