52. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 17. mars 2020 kl. 17:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 17:20
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 17:20
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 17:20
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 17:20
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 17:20
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 17:20
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 17:20
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 17:20
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 17:20
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 17:20

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Anna Kolbrún Árnadóttir og Ásmundur Friðriksson voru tengd fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 17:20
Frestað.

2) 664. mál - atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa Kl. 17:30
17:30 Á fund nefndarinnar mættu Ari Guðjónsson og Bogi Nils Bogason frá Icelandair. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

18:00 Á fund nefndarinnar mættu Jóhannes Þór Skúlason, Gunnar Valur Sveinsson og Benedikt S. Benediktsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Heiðmar Guðmundsson frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 667. mál - tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví Kl. 18:37
Frestað.

4) Önnur mál Kl. 18:42
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 18:42