71. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, fimmtudaginn 14. maí 2020 kl. 13:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 13:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 13:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 13:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 13:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 13:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 13:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 13:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 13:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:00

Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 14:48.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Frestað.

2) 665. mál - aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum Kl. 13:00
Á fund nefndarinnar mættu Stefán Daníel Jónsson og Benedikt Baldur Tryggvason frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 701. mál - sjúkratryggingar Kl. 13:33
Á fund nefndarinnar mætti Guðlín Steinsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 635. mál - lækningatæki Kl. 14:10
Á fund nefndarinnar mættu Nanna Elísa Jakobsdóttir og Sigríður Mogensen frá Samtökum iðnaðarins. Með þeim for Guðmundur Fertram Sigurjónsson og Dóra Hlín Gísladóttir frá Samtökum fyrirtækja í líf- og heilbrigðistækni. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 15:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:00