72. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, mánudaginn 18. maí 2020 kl. 09:30


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:30
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:30
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:30

Anna Kolbrún Árnadóttir boðaði forföll.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Frestað.

2) 813. mál - atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Gissur Pétursson, Bjarnheiður Gautadóttir og Eva Margrét Kristinsdóttir frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Ákveðið var að senda málið til umsagnar með einnar viku umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Lilja Rafney Magnúsdóttir verði framsögumaður málsins.

3) 383. mál - málefni aldraðra Kl. 10:30
Samþykkt var að afgreiða málið með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna.

Að nefndaráliti standa allir viðstaddir nefndarmenn.

Hanna Katrín Friðriksson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk álitinu.

4) 468. mál - fjöleignarhús Kl. 10:35
Nefndin ræddi málið.

5) Önnur mál Kl. 10:53
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:53