73. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, miðvikudaginn 20. maí 2020 kl. 09:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:40
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Guðjón S. Brjánsson vék af fundi kl. 09:40 og mætti þá Helga Vala Helgadóttir.

Ólafur Þór Gunnarsson stýrði fundi frá kl. 09:00 til 09:40.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) 813. mál - atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa Kl. 09:00
09:00 Á fund nefndarinnar mættu Unnur Sverrisdóttir og Sverrir Berndsen frá Vinnumálastofnun. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

09:45 Á fund nefndarinnar mætti Ragnar Árnason frá Samtökum atvinnulífsins. Fjallaði hann um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

10:37 Á fund nefndarinnar mættu Drífa Snædal og Halldór Grönvold frá Alþýðusambandi Íslands. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 812. mál - atvinnuleysistryggingar Kl. 11:00
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með fresti til 29. maí. Þá var ákveðið að Halla Signý Kristjánsdóttir verði framsögumaður málsins.

4) 468. mál - fjöleignarhús Kl. 11:00
Frestað.

5) Önnur mál Kl. 11:05
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:05