76. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, þriðjudaginn 26. maí 2020 kl. 13:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 13:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 13:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 13:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 13:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 13:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 13:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 13:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:00

Ásmundur Friðriksson boðaði forföll.

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Sævar Bachmann Kjartansson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Frestað.

2) 813. mál - atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa Kl. 13:00
13:00 Á fund nefndarinnar mættu Daníel Orri Einarsson, Árni Özur Árnason og Snæbjörn Jörgensen frá Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

15:10 Á fund nefndarinnar mættu Unnur Sverrisdóttir og Sverrir Berndsen frá Vinnumálastofnun. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

15:30 Á fund nefndarinnar mætti Helga Þórisdóttir frá Persónuvernd. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 838. mál - þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir Kl. 15:40
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Halla Signý Kristjánsdóttir verði framsögumaður málsins.

4) Önnur mál Kl. 15:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:45