2. fundur
velferðarnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 12. október 2020 kl. 09:30


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:40
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:30
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:30
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:30

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Lög um húsnæðismál (hlutdeildarlán) Kl. 09:35
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund, Gunnhildi Gunnarsdóttur, Lísu Margréti Sigurðardóttur og Ástu Margréti Sigurðardóttur frá félagsmálaráðuneyti og Hermann Jónasson, Önnu Guðmundu Ingvarsdóttur, Elmar Þór Erlendsson og Rún Knútsdóttur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

2) Önnur mál Kl. 10:30
Nefndin fjallaði um störf nefndarinnar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:35