18. fundur
velferðarnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 2. desember 2020 kl. 09:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Inga Skarphéðinsdóttir
Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 15., 16. og 17. fundar var samþykkt.

2) 329. mál - sóttvarnalög Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Rögnvald G. Gunnarsson og Sigurð Kára Árnason frá heilbrigðisráðuneyti.

3) 300. mál - atvinnuleysistryggingar Kl. 10:20
Nefndin fjallaði um málið.

4) 323. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 10:20
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Andra Val Ívarsson og Karen Ósk Pétursdóttur frá BHM, Álfheiði M. Sívertsen frá Samtökum atvinnulífsins og Huldu Ragnheiði Árnadóttur frá Félagi kvenna í atvinnulífinu.

5) Önnur mál Kl. 11:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:30