19. fundur
velferðarnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 4. desember 2020
kl. 09:00
Mætt:
Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 10:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00
Nefndarritarar:
Inga Skarphéðinsdóttir
Ívar Már Ottason
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.
2) 323. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Leó Örn Þorleifsson frá Vinnumálastofnun, Bryndísi Gunnlaugsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Jón Fannar Kolbeinsson frá Jafnréttisstofu, Tatjönu Latinovic og Brynhildi Heiðar- og Ómarsdóttur frá Kvenréttindafélagi Íslands, Sigrúnu Daníelsdóttur frá Embætti landlæknis, Alexander Kristinn Smárason frá Félagi íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna, Ingi Maríu Hlíðar Thorsteinsson frá Ljósmæðrafélagi Íslands og Konráð S. Guðjónssong og Öglu Eir Vilhjálmsdóttur frá Viðskiptaráði Íslands.
3) 300. mál - atvinnuleysistryggingar Kl. 11:00
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu. Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Vilhjálmur Árnason skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu, Anna Kolbrún Árnadóttir og Guðmundur Ingi Kristinsson skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu með fyrirvara. Helga Vala Helgadóttir boðaði sérálit.
4) 361. mál - félagsleg aðstoð og almannatryggingar Kl. 11:10
Nefndin fjallaði um málið og ákvað að framsögumaður þess yrði Halla Signý Kristjánsdóttir.
5) 362. mál - greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs Kl. 11:15
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 3. desember og að Ásmundur Friðriksson yrði framsögumaður þess.
6) 371. mál - sjúklingatrygging Kl. 11:20
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með fresti til 3. desember og að Ólafur Þór Gunnarsson yrði framsögumaður þess.
7) Önnur mál Kl. 11:20
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:20