23. fundur
velferðarnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 14. desember 2020
kl. 08:30
Mætt:
Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 08:30Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 08:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 08:30
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 08:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 08:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 08:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 08:30
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:30
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 08:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:30
Nefndarritari: Ívar Már Ottason
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:30
Frestað.
2) 300. mál - atvinnuleysistryggingar Kl. 08:30
Nefndin fjallaði um málið.
3) 362. mál - greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs Kl. 09:00
Nefndin ákvað að afgreiða málið til annarrar umræðu. Ásmundur Friðriksson, Ólafur Þór Gunnarsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Vilhjálmur Árnason skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu, Anna Kolbrún Árnadóttir og Helga Vala Helgadóttir skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu með fyrirvara.
4) 371. mál - sjúklingatrygging Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þórólf Guðnason sóttvarnalækni. Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu. Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu.
5) 323. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 10:10
Nefndin fjallaði um málið.
6) Önnur mál Kl. 11:05
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:05