39. fundur
velferðarnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 2. febrúar 2021 kl. 19:20


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 19:20
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 19:20
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 19:20
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 19:20
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 19:20
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 19:20
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 19:20
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 19:20
Sigríður Á. Andersen (SÁA) fyrir Ásmund Friðriksson (ÁsF), kl. 19:20
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 19:30

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 19:20
Frestað.

2) 329. mál - sóttvarnalög Kl. 19:20
Nefndin ákvað að afgreiða málið til þriðju umræðu. Allir nefndarmenn rita undir nefndarálit, þar af Helga Vala Helgadóttir, Anna Kolbrún Árnadóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Sara Elísa Þórðardóttir og Sigríður Á. Andersen með fyrirvara sem þau hyggjast gera grein fyrir í ræðu. Hanna Katrín Friðriksson var samþykk álitinu.

3) Önnur mál Kl. 20:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 20:00